|
04.11.2009 18:36:15 / Arnarhraun
Já .. það er farið að kólna ... Kallinn fór og sótti sér flíspeysu til að vera í meðan hann er að ná upp hita í íbúðinni. Annars er ekki mikið búið að vera að gerast síðustu daga ... svona "out of the ordinary"!!! Nema ef vera skildi að ég hef orðið var við óvenjumikla traffík á síðunni síðustu dag ... hvernig sem stendur nú á því     Bara gaman að því ...
»
29.10.2009 23:05:20 / Arnarhraun
lítill feitur dvergur, sem getur ekki hreyft sig    Páll, ertu virkilega ennþá svona sár yfir því að einhverjir gagnrýni þig ???
»
02.04.2009 20:19:22 / Arnarhraun
Ástæða þess að ég hef tíma núna til að skirfa eitthvað á bloggið er að ég er ekki í Háskólabíó að syngja Die Schöpfung, The Creation, eða bara Sköpunina eftir Joseph Haydn. Er þetta líka þegjandi hás .. búinn að bryðja í mig þvílíkt magn af sterum að ég á ekki séns á að taka þátt í neinum keppnum sem olympíuhreyfingin stendur fyrir næstu árin. Vonir standa til að röddin verði komin til baka á morgun. Sjáum til..... Það er svo sem ekkert svakalegt búið að gerast síðan síðast, ég er búinn að hjóla þetta sirka 100-150 km í viku... Þetta er orðið svo eðlilegt að ég nenni ekkert að vera að tilkynna það neitt sérstaklega. Er líka hættur að vera jafnspenntur á pikkaleiðirnar inn í www.is.map24.com til að sjá vegalengdirnar... ég veit þær orðið utanað  Kílólega séð þá hafa farið 10 kíló en mestu skiptir að ég er komin niður um tvær fatastærðir og orðinn stæltari. Ekki alveg hægt að segja helköttað kvikindi ennþá og þaðan af síður tanaður í drasl. Fer samt kannski í sprautuklefa þegar ég kemst í 90 kílóin. Veriði alveg róleg. Það eru sirka 27 kíló í það en. Kannski ég taki áheitum á það og láti renna til góðgerðamála. Það verður það líka aflitað hár og allur hnakkapakkinn.... Kem til með að fyljgast með kommentum hvort það er stemming fyrir þessu. Jæja ... annað er það nú ekki svona í bili. ciao
»
13.02.2009 09:04:50 / Arnarhraun
Eins og glöggvir lesendur síðunar hafa tekið eftir þá hefur ekki verið mikið bloggað síðustu vikurnar ... Það er ekki af því að það sé ekkert að gerast, meira frekar að tími til ritstarfa hefur verið takmarkaður. Hjólaferðir hafa haldið áfram og göfga manninn sem fyrr. Rúmleg fatastærð hefur horfið af drenginum og kílóin eru aðeins farinn að hverfa líka. Í þessari viku náði ég t.d. að hjóla rétt tæpa rúma 70 km á þremur dögum. Svo sem ekki miklar vegalengdir miðað við sumar vikur en í fimbulkulda. Og kom bara í ljós að kuldin hefur nánast engin áhrif á mann. Eitt hefur þó verið að pirra hjólakappann og það er hversu skelfilega Hafnarfjarðarbær stendur sig í að skapa hjólamönnum möguleika á að hjóla. Það er engin hjólaleið úr Hafnarfirði sem tengir bæjarfélagið við t.d. frábært hjólakerfi Garðbæinga. Leiðir eru ekki mokaðar af hálfu bæjarfélagsins og Hólamönnum gert að hjóla annað hvort á Reykjanesbrautinni við Fjarðarkaup eða þá á brautinni framhjá IKEA ... Það sér hver heilvita maður að þetta nær ekki nokkuri átt. Og það á tímum sem verið er að hvetja menn til að nota náttúrvænni og grænni farartæki en bíla. Og á sama tíma skilst mér að ferðir Strætisvanga séu skornar niður í nafni þess að bæta þjónustuna .... Getur einhver útskýrt það fyrir mér hvernig færri ferðir skili betri þjónustu ??????? Túbudregurinn túbast sem aldrei fyrr, er byrjaður í Lúðrasveit og ég veit ekki hvað ... Mikið að gerast á þeim bænum. Sönglega þá byrjar þessi mánuður frekar rólega ef litið er á jarðarfarir en það horfir allt til hins betra ef svo má að orði komast  Karlakórinn ætlar að taka þátt í afhendingu tónlistarverðlaunanna og svo á að taka upp smá demódisk með þessum síungu og fallegu drengjum í lok næstu viku. Þannig að allt er að gerast.
»
22.01.2009 11:07:20 / Arnarhraun
Já það er allt að gerast í þjóðfélaginu og ég nenni ekki að blogga um það.
Hins vegar þá hef ég verið á faraldsfæti á hjólinu mínu síðustu vikur og er bara að vera kominn í ágætisform. Ég hef verið að hjóla þetta 88 kílómetra til 140 kílómetra á viku. Sem ég held að sé bara ágætt. Meðaltími á hjólinu á dag hefur verið þetta um tvær stundirnar. Lengstu dagleiðina tók ég í gær en hún var 62 kílómetrar. En það samsvarar vegalengdin að hjóla til Stokkseyrar ... og það að vetri til. Ég hjólaði sum sé úr Hafnarfirði í Grafarvoginn með viðkomu á Kársnesinu. Fór nefninlega og sótti Einar Clausen félaga minn og skilaði heim að athöfn lokinni(eða svo gott sem) og fór svo í fjörðinn. Það voru 34 km og kannski alveg nóg á einum degi. En þar sem jarðarför í Dómkirkjunni var á dagskrá(Voces Masculorum leystu af lögreglukórinn sem hafði öðrum hnöppum að hneppa) og rúmir 28 km í boði þá gat ég ekki staðist freistinguna. Færið var náttúrlega ekki uppá það besta, glæruhálka um morguninn og slabb seinnipartinn. Þá er bara málið að klæða sig rétt.
Við Dómkirkjuna var náttúrlega verið að mótmæla, en ég og Séra Hjálmar ásamt tveimur öðrum herramönnum löbbuðum út og báðum fólkið að sýna tilitssemi við hina látnu og aðstandendur hennar. Það var bara tekið vel í það og sýnir nokkuð vel að ekki er bara skríll að mótmæla eins og ráðamenn vilja oft benda á.
Nú eftir för var svo hjólað í Ríkið og hent til nokkrum bjórkössum. Það er hverjum manni hollt og miklu betra en að henda gangstéttar hellum í láglaunaða lögreglumenn ...
Svo var bara chillað það sem eftir var af kveldi enda kallinn svolítið að merkja það að hann er ekkert unglamb lengur. Svona vegalengdir taka á. Þegar tímar eru skoðaðir þá sat kallinn í þrjá klukkutíma og ellefu mínútur á hnakknum í gær.
Já kallinn er bara stolltur af sér.
»
12.01.2009 09:21:56 / Arnarhraun
Já það er bara komið nýtt ár og meira en það nýtt blogg....
Ekki það að ég hafi frá einhverju að segja. Þetta ár hófst þó eins og það gamla endaði, á veikindum. Einhver helv. hálsbólgupest og síðar þessi líka fína skita(fer ekki nánar út í það).
Nú hvað er maður búin að gera á nýju ári ?? Hjóla, syngja í jarðarförum og messum, selja smá áfengi, smíða og steypa smá í hesthúsi fjölskyldunnar, fór á borgarafund og baulaði á Heilbrigðisráðherra(það er hverjum manni hollt) .... Meira er það nú varla.
Þó aðeins að hjólamálum. Í síðustu viku setti ég persónulegt met. Hjólaði 140 km í það heila og sleppti þó tveimur dögum úr(maður má ekki ofgera sér í þessu). Takmark þessarar viku er svo að ná 100 km. Sé ekki fram á jafn hentugar jarðarfarir. Enda styttist nú óðfluga í að 1000km standi á mælinum á hjólinu.
Var það eitthvað annað ??? Held bara ekki.
»
24.12.2008 10:40:23 / Arnarhraun
Við hér á Hrauninu sendum öllum lesendum okkar til lands og sveita, nær og fjær, innanlands sem utan, konum sem körlum, ungum sem öldnum okkar hugheilustu jólakveðjur!!!!!
Það er búið að saga jolatréð og þá er nú alltaf stutt í pakkana sem þetta snýst jú allt í kringum...... eða var það ekki!!!
»
21.12.2008 22:17:23 / Arnarhraun
Bloggsíðan búin að vera úti í þrjá daga og ég man ekkert hvað ég ætlaði að blogga þessa daga ... Nema kannski að það er búið að drekka glühwein alla dagana. Það eru jú að koma jól. Á morgun er svo ríkið og jarðarför í Grafarvogi sem þýðir annað hvort langann hjólatúr í slagveðursrigningu og snjókomu eða þá að ég fari á bílnum.... læt ykkur vita þegar nær dregur. Svo má geta þess að Austurríska bumburúllutækið var tekið fram í gær og það háleita markmið sett að á meðan horft var á heimsmeistaraslag Valjuev og Holyfield, í þeirri göfugu íþrótt Hnefaleikum, átti að gera magaæfingar meðan hver lota stóð .... En hver lota er þrjár mínútur. Þetta gekk í fjórar lotur en þar sem bardaginn stóð í allar tólf þá sá ég mér ekki fært að klára. Fjórar lotur voru þó lagðar að baki og harðsperrunar í dag eru alveg eftirtektarverðar    Stefni á að vera með svona Sixpack 46 ára  Stefni á að vera með svona Sixpack 46 ára Þannig er nú það...
»
17.12.2008 12:47:26 / Arnarhraun
Já þar fór mikill leikari og ekki síður mikill áhrifavaldur á mig. Derrick var náttúrlega algert uppáhald hjá mér löngu áður en ég vissi að ég þyrfti að læra þýsku. Hann og Ottó, sáu til þess að kerlingarskassið hún Inga Blandon náði ekki að eyðileggja fyrir mér viljann til að læra tungumálið. Siggi þýskukennari í Flensborg hleypti mér svo í gegnum þýskuáfangann 502 þar sem ég skrifaði ritgerð um stórmennið Derrick... Þar sem ég er nörd þegar kemur að þessum þáttum þá langar mig að tjá mig smá... Fritz Wepper hóf þetta ævintýri með því að leika í þáttum sem hétu "Der Kommissar" og var tekinn upp í svarthvítu ... Þar lék hann einmitt Harry Klein sem var undir maður "Kommissar Keller" eins konar fyrirmynd Stefan Derrick. Þegar skipt var yfir í Derrick(en sami maður skrifaði báða þætti, rithöfundurinn Herbert Reinecker, meira um hann kannski síðar) þá átti Harry að verða aðalguttinn en með tilkomu Horst þá var ákveðið að láta Fritz vera áfram í aðstoðarmannshlutverkinu. Þetta var heillaráð því þættirnir urðu 281 og er upphafsmelódían hans Les Humphries í upphafi þáttanna löngu orðin ódauðleg. Við félagarnir sömdum einhvern tíma íslenskann texta við hana, hann hljómaði einhvern veginn svona. Og nú syngja allir hástöfum: Hann Derrick hann er fínn leysir málin sjálfur. Við hlið hans stendur Klein bölvaður fylliraftur! (meira man ég ekki, fyrir utan það að það var langur lalalala kafli) Horst Tappert lék sinn síðasta Derrick í þættinum " Das Abschiedsgeschenk" en ljáði þó Derrick rödd sína í teiknimyndinni " Derrick – Die Pflicht ruft"  Fritz Wepper talaði fyrir Harry Klein, þar er í raun gert stolpagrín að þáttunum og sýnir það eiginlega hversu mikinn húmor Horst og Fritz höfðu fyrir sjálfum sér og seríunni sjálfri.
»
16.12.2008 22:39:35 / Arnarhraun
Já ég er sko alls ekkert hættur að blogga og þaðan af síður að hjóla. Nú er þetta bara orðið svo normal að manni finnst vart taka því að blogga um það.
Þó skal þess getið að ég að ég hafði huxað mér taka hjólið með í Sumarbústað nú um helgina. Það var farið í Reykjaskóg og þar sem ég átti að syngja í jarðarför á Selfossi á laugardaginn þá datt mér í hug að hjóla þangað. Þegar ég fór að skoða fjarlægðir þá sá ég að það var 2x 52 kílómetrar. þá var ég snöggur að hætta við það. Svo var líka 16° frost og það hefði líkast til ekki verið optimal.
Í dag fór ég hinsvegar í Langholtskirkju á hjólinu og það voru 25,73 kílómetrar.... Þetta var í fyrsta sinn sem ég hjóla í slabbi og ís og var bara mjög skemmtileg upplifun. Gott í reynslubankann...
Á morgun á svo að þvo hjólfákinn og bóna. Það þarf að vera góður við greyið inn á milli ... hann þarf jú að bera mig á milli staða.
»
10.12.2008 19:30:33 / Arnarhraun
Þá vorum að guttarnir í Voces Masculorum að syngja með Bó Hall á jólatónleikunum í Laugardalshöllinni. Smá krítík http://www.dv.is/kritik/2008/12/9/bo-gefur-go-jolin/Já .... Það var bara rosalega gaman hjá okkur.
»
08.12.2008 10:27:14 / Arnarhraun
Já nú er kallinn sko búinn að vera bissý, hef ekki haft neinn tíma fyrir bloggið. Það er samt hægt að skella einhverju inn núna. Í fyrir hjólanördana þá er hægt að segja það að það komu einhverjir 80 kílómetrar á mælinn í síðusu viku og samt gleymdi ég að starta mælinum tvisvar fyrr en í miðri ferð.... Það var sum sé hjólað tvisvar í Laugardalshöllina, tvær jarðarfarir og svo annað innann bæjar snatterý ...
Stikkorðið Laugardalshöll, Við karlarnir í Voces Masculorum vorum nemlig bakraddir á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar á laugardaginn. Og gekk bara svona glimrandi vel, hljóðmenn hafa vart heyrt svona góðann kór, Bó var ánægður og Raggi Bjarna vill taka upp með okkur lag, getur þetta orðið eitthvað betra. Held að hátindur kvöldsins(hvað okkur varðar) hafi verið þegar við sungum "Ups I did it again", í snilldarútsetningur Skarpa, í eftirpartýinu ...
Þóra og Björn voru líka með maraþonsöngdag á Laugardaginn. Björn var með Lækjarskólakórnum á syngjandi jólum, það var Þóra líka með kórinn af Hörðuvöllum og svo með Barbörunum auk þess að syngja í Brúðkaupi ... það er sem ég segi, brjálað að gera hjá þessari famelíu, þannig á það líka að vera. Gott ef að BA var á ekki á tónleikum svo í gær í Hafnarfjarðarkirkju, seisei já!!!!
í gær var svo stefnt að því að vera þunnur og hjóla þynkuna úr sér á leið í messu í Áskirkju. Hvorugt þessara göfugu markmiða náðist. Enginn var þynkan og ég fór að smíða/handlanga með Guðna frænda í hesthúsinu hjá Pabba og Ragga mág(auk þess að syngja messuna) langt fram á kvöldið. Hjólatúrinn verður bara að færast á annann dag.
Var það eitthvað meira ,,, neeee held ekki.
»
03.12.2008 09:43:35 / Arnarhraun
Já ... nú er svolítið um liðið frá því síðast. Mikið hefur gerst. Það var 70 afmæli á laugardaginn hjá Tengdamömmu, þar sem margt manna safnaðist saman til að fagna. Okkur telst til að meðalaldur gesta hafi verið eitthvað milli 65 - 67 ár. Þar var náttúrulega mikið etið, eitthvað sungið en fáar ræður(að ósk afmælisbarnsins) og er það vel. Þar spiluðu barnabörnin á sín hljóðfæri og var gerður rómur góður að þeim flutning. Bergljót Ásta á Orgelið og Björn á Túbu. Svo söng kvartettinn "Systkin og mágur" nokkur lög. En kvartett þessi stundaði æfingar sínar á vefnum að mestu leyti og var bara nokkuð góður samhljómur þrátt fyrir það  Á Sunnudaginn átti svo Þóra afmæli og á þeim degi var nýja orgelið í Hafnarfjarðarkirkju vígt og seinni partinn voru svo vígslutónleikar. Frábært hljóðfæri það. Afmælis dagurinn skolaðist því svolítið til .... Og fór svo alveg í rugl þegar uppfattaðist að um kvöldið væri Aðventukvöld í Áskirkju. Ég fór því þangað og söng, og var Þóra sofnuð þegar ég kom heim. Á mánudaginn hófst svo leitin að réttu hurðinni ... og sér ekki enn fyrir endann á því ævintýri. Í gær kom svo út geisladiskur Kórs Áskirkju, "Það aldin út er sprungið". Bara nokkuð skemmtilegur diskur það. Takið sérstaklega eftir hvað tenórinn er góður, já það vill svo skemmtilega til að ég er í kórnum. Í kvöld er svo fyrsta æfing með Bó í Laugardalshöllinni. Forvitnilegt að vita hvernig hún gengur. Mér er spurn ... http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/12/03/aflimadi_med_hjalp_sms/Takið eftir síðustu línunni: Nott hafði aðeins aðgang að rúmum hálfum lítra af blóði og frumstæðum skurðtækjum en aðgerðin, sem var framkvæmd í október, tókst vel og náði drengurinn fullum bata.
Hvernig getur maður náð fullum bata þegar búið er að taka af aðra hendina ... Óx hún aftur ???
»
28.11.2008 00:15:16 / Arnarhraun
Nema hvað að ég hjólaði á æfingu í Vídalínskirkju í blíðveðrinu nú síðdegis, til að æfa fyrir Jólakonsert Bó Hall ásamt köllunum. Það bætti upp fyrir samviskubitið að geta ekki hjólað í Grafarvog í (gær-)morgun ... Ég fór í ríkið og ég verð nú að segja eina krassandi sögu þaðann. Við gengum frá 10 brettum á innan við þremur tímum, sem hlítur að vera met....
En aftur að hjólaferðinni þá fauk ég nú eiginlega til baka. Var allveg skuggalega fljótur verð ég að segja. ætli meðalhraðinn hafi ekki verið eitthvað um 33 km. Ég hef alla veganna sjaldan áður þurft að bremsa mig niður upp brekkur.
Þannig var nú það ...
»
26.11.2008 13:31:02 / Arnarhraun
Já það kom komment sem bað um fyllerýssögur úr Ríkinu .... í stað heilsubloggs!!!
Ég fer bil beggja og segi því, í dag hjólaði ég úr Hafnarfirði uppá stuðlaháls, en þar eru til húsa höfuðstöðvar ÁTVR. Þar fór ég á námskeið í manngreiningum og raunar í mikla naflaskoðun. Hún staðfesti enn frekar að ég er rauður karakter sem sveiflast yfir í gult. Það þýðir að ég er einstaklingur sem tek ákvarðanir út frá rökhyggju en ekki hjartanu og blaðra út í eitt ef ég fæ séns á því að segja frá sjálfum mér.... Þannig er nú það.
Hjólaði svo til baka og er því búin með 23 kílómetra í dag. Það er búið að taka hættulegasta kaflann á leiðinni og laga hann. Það er, brúin við smáralindina er tilbúin og þrengingarnar farnar. Hins vegar er búið að þrengja leiðina undir hringtorgarbrúnna, fyrir ofan smáralindina, með steypuköntum og því verður maður að vera í þungri umferð þar. Vonandi fer formið að verða orðið það gott að ég nenni að leita að hjólastígum sem eru hættuminni og leiða mann ekki alltaf uppí Bláfjöll bara af því að það er svo fallegt þar á leiðinni til Gravarvogs, Elliðárdals eða Breiðholts ...
Svo er ég að lesa Myrká eftir Arnald.
Megi aflið fylgja reiðhjólamönnum !!!
»
Síður: 1 2 3 ... 35
|