Pakkið á Arnarhrauninu
13.02.2009 09:04:50 / Arnarhraun

Lítið bloggað ..

Eins og glöggvir lesendur síðunar hafa tekið eftir þá hefur ekki verið mikið bloggað síðustu vikurnar ...  Það er ekki af því að það sé ekkert að gerast, meira frekar að tími til ritstarfa hefur verið takmarkaður. 

Hjólaferðir hafa haldið áfram og göfga manninn sem fyrr.  Rúmleg fatastærð hefur horfið af drenginum og kílóin eru aðeins farinn að hverfa líka.  Í þessari viku náði ég t.d. að hjóla rétt tæpa rúma 70 km á þremur dögum.   Svo sem ekki miklar vegalengdir miðað við sumar vikur en í fimbulkulda.  Og kom bara í ljós að kuldin hefur nánast engin áhrif á mann. 

Eitt hefur þó verið að pirra hjólakappann og það er hversu skelfilega Hafnarfjarðarbær stendur sig í að skapa hjólamönnum möguleika á að hjóla.  Það er engin hjólaleið úr Hafnarfirði sem tengir bæjarfélagið við t.d. frábært hjólakerfi Garðbæinga.  Leiðir eru ekki mokaðar af hálfu bæjarfélagsins og Hólamönnum gert að hjóla annað hvort á Reykjanesbrautinni við Fjarðarkaup eða þá á brautinni framhjá IKEA ... Það sér hver heilvita maður að þetta nær ekki nokkuri átt.  Og það á tímum sem verið er að hvetja menn til að nota náttúrvænni og grænni farartæki en bíla.  Og á sama tíma skilst mér að ferðir Strætisvanga séu skornar niður í nafni þess að bæta þjónustuna ....  Getur einhver útskýrt það fyrir mér hvernig færri ferðir skili betri þjónustu ???????

Túbudregurinn túbast sem aldrei fyrr, er byrjaður í Lúðrasveit og ég veit ekki hvað ... Mikið að gerast á þeim bænum.

Sönglega þá byrjar þessi mánuður frekar rólega ef litið er á jarðarfarir en það horfir allt til hins betra ef svo má að orði komast :$   Karlakórinn ætlar að taka þátt í afhendingu tónlistarverðlaunanna og svo á að taka upp smá demódisk með þessum síungu og fallegu drengjum í lok næstu viku.  Þannig að allt er að gerast.

Lady Bögg skrifaði
Ekki mikið og ekki oft... en það má alveg sýna lífsmark ... svona öðru hverju!!!
Ása Björk skrifaði
'i dag er 21.03 og ekkert verið bloggað síðan 13.02! Ertu búinn að hjóla þig frá blogginu? Mar les og les þetta sama gamla blogg og nú vil ég fara að fá nýtt! kv ÁBs blogglesari

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  16  Alls: 82289
Klukkan
Leitarbox